fanney79

halló fólk(og furðufuglar)

02.05.2007 12:16:35 / fanney79

Ýmislegt...skólinn, balet, sumarið og fl.

Skólinn að verða búinn...hann er reyndar búinn en prófin eru eftir.
Mér er búið að ganga alveg rosa vel þessa önnina...er búin að ná símatinu í næstum öllu...sem er bara ekkert nema frábært :)

Það er lokasýning hjá Önnu Marý í Borgarleikhúsinu í kvöld og hlakkar mér voða mikið til að sjá litlu skottuna dansa balet upp á Stóra sviðinu í kvöld :)
Hún er búin að standa sig ekkert smá vel þessa önnina og er hún búin að fara á aukaæfingar út af sýningunni :)

Sumarið að koma...eða er komið en það á bara eftir að batna aðeins veðrið og mér langar alveg rosalega að gera eitthvað sniðugt...t.d fara í bústaðarferðir, tjaldútilegur og jafnvel fara til útlanda....en það er spurning hvað verður gert...er líklega hætt við að fara til Eyja um verlunnarmannahelgina og jafnvel að maður skelli sér bara til Köpen í staðinn...allt svosem óráðið ennþá.

Halldóra að yfirgefa Klakann næstum allt sumar og það væri voða gaman að fara út með henni næstu helgi til að kveðja....en þar sem næsta helgi er mömmu helgi þá er spurning hvort maður fái pössun...kemur allt í ljós :)

Jæja held ég hafi nú mest lítið að segja meira í bili...þannig bara bæ :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 16:43:58 / fanney79

Nýr kjóll!!!!!!! :D

Ég var að fá mér nýjan kjól í gær :D....alveg extra fína...rauðan og silfurlitaðan...geðveikt flottur :)
Ég þurfti reyndar að láta breita honum aðeins þar sem ég get ekki rennt honum upp yfir brjóstin :O Þannig að ég þurfti að láta stitta rennilásinn og setja bönd í hann efst :)
Svo fæ ég að nota hann á morgun því ég Magdalena og Guðrún ætlum að skella okkur á ásrshátíð....og hver veit nema það verður skroppið á Sólon eða eitthvað eftir matinn...því ég ætla ekki að vera yfir ballið sjálft...bara matinn og skemmtiatriðin :)

Það er ekki komið neitt ákveðið plan um helgina...nema bara að ég er að vinna á laugardag....en planið er að gera eitthvað...kannski við Einar plötum eitthvað að fólki til að gera eitthvað sniðugt með okkur...Allavega er Kristín og Halldóra til í að gera eitthvað...kannski að við fáum fl fólk með okkur :)
 

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 18:07:48 / fanney79

Líffræði kennari minn og partý

Ég er bara engan vegin að meika líffræði kennara minn...hann bara kann alls ekki að kenna að mínu mati og ef ég fell í líffræði þá mun ég kenna honum alfarið um!!!
Ég hef verið með marga kennara í skólanum og hef ekki verið jafn ósátt við nokkurn þeirra eins og þennan...en til bóta fyrir mig er ég með æðislega kennara í sögu og félagsfræði :) enda er ég hæðst í þeim fögum af öllum sem ég er að taka þessa önnina.

Svo er næsta mál á dagskrá...stelpu partý á laugardag :) og við verðum að ég held alveg þó nokkrar :)
Svo eftir partýið verður án efa skroppið niður í bæ og hadið áfram að tjútta :D
Það er orðin svolítið langt síðan ég fór á tjúttið og mér hlakkar mikið til :D

 

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 20:12:50 / fanney79

Bíllinn minn dauður :( en það jákvæða er að ég er að fara í bústaðarferð :)

Ég var búin að skrifa færslu og svo þegar ég ætlaði að kíkja inn á hana þá saveaðist bara fyrirsögnin :O
En allavega hér er færslan sem átti að koma :)

Bíllinn minn dó um daginn og núna er ég bíllaus :(
Reyndar hefur Einar verið svo sætur í sér að lána mér bílinn sinn, þannig að ég er ekki alveg bíllaus :)
En ég þreyf bílinn hans fyrir lánið á bílnum :)

Svo er það bústaðarferð næstu helgi...ég og Einar ætlum að fara á föstudag og svo kemur fl fólk á laugardag :)
Þetta verður bara kósýheit út í eitt :D
Það er búið að vera nóg að gera í skólanum þannig að það verður frábært að komast út úr bænum yfir eina helgi og hugsa bara mest lítið um skólabækur....því ég ætla að vera búin að læra mest allt fyrir helgina og ef það verður eitthvað eftir að læra þá verður það gert sunnudagskvöldið þegar ég kem heim :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 18:51:37 / fanney79

Vá hvað ég er eitthvað mikið nörd thíhí :P

Í síðasta tímanum mínum í dag í skólanum voru strákarnir í þýsku að væla um hvort þeir mættu ekki fara fyrr úr tíma til að horfa á leikinn og kennarinn sagði að þeir sem væru búnir með heimaverkefnið fyrir daginn í dagmættu fara fyrr...en svo komst ég að því að ég var sú eina sem var búin að læra heima fyrir daginn í dag þannig að ég var sú eina sem labbaði út úr tíma fyrr og ég ekki að fara að horfa á leikinn hahahaha :P

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 17:32:32 / fanney79

Það er ekki við kvennfólkið sem eru dramadrottningar!!!

Það er alveg búið að vera nóg af drama í mínu lífi nú upp á síðkastið...ég er alveg komin með upp í kok!!! Og allt þetta drama viðkemur karlmönnum í mínu lífi...tek það fram að það er EKKI EINAR!!! Allt þetta tal um að kvennfólk séu meiri drama drottningar held ég bara að sé bull...ekki finnst mér neitt drama í kringum það kvennfólk sem er í kringum mig.....hvað segið þið...eru kk meiri drama drottningar en kvk????????????????

Og í allt annað....Halldóra hringdi í mig um daginn og spurði mig hvort það væri ekki komin tími á eitthvað skemmtilegt furðufata partý á næstunni...ég tók bara vel í það...en þá er bara að finna tíma sem henntar sem flestum og svo er líka spurning hvar það ætti að vera....þetta þarf að fara í nefnd held ég barasta :) En allavega þá held ég að þetta gæti bara verið mjög gaman....sérstaklega eftir allt þetta drama.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 14:49:40 / fanney79

Já ég veit ég hef verið ódugleg að blogga

Ég er byrjuð í skólanum á fullu aftur og vitlaust að gera í honum strax...sem er bara allt í lagi nema þegar kennarar eru að setja fyrir mann verkefni sem skipta ekki máli og eru eiginlega bara gjörsamlega út úr efninu...það er eins og sumir kennarar haldi að maður hafi bara ekkert betra að gera en að gera einhver tilgangslaus verkefni!!!!!
Ég hef bara nóg að gera með minn tíma...er í fullu námi, með 2 börn og svo var ég að vinna líka en ég er það víst ekki lengur....löng saga sem ég ætla ekkert að koma með hér.

Helgin verður mjög aktíf í tómstundum með dætrum mínum þar sem þær eru báðar í dansi...eða sú yngri í dansi og sú eldri í ballet :) Svo ætlar sú eldri að fara að byrja á skautanámskeiði á sunnudag og sú yngri ætlar að fá að vera með að einhverju leiti :) Mér finnst bara mjög mikilvægt fyrir börn að stunda tómstundir :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 15:18:22 / fanney79

Nýtt ár og önnur önn :)

Jæja nýja árið gengið í garð og skólinn að fara að byrja aftur...á að byrja samkvæmt stundaskrá þann 8 janúar :) Er að fara að sækja stundaskrána mína á morgun og svo er farið í bókaleiðangur...tekur alltaf sinn tíma að finna allar bækur :S Það á að vera stelpudjamm á þrettándanum...eða ég Kristín, Árdís og Íris ætlum að kíkja eitthvað saman...langt síðan ég fór út svona bara með stelpunum...þannig að ég hlakka bara mikið til :) Ég er ekkert smá dekruð orðið af Einari...hann kom til mín milli jóla og nýárs og þá hafði minn skroppið í Kringluna og keypt handa mér gjöf...hann keypti ekkert smá sæta korselettu, undibuxur og 2 stk rósir :) Frekar mikið sætur í sér :D Mamma og Tóti keyptu sér nýjan bíl í gær og þau gáfu mér aukadekk sem voru undir gamla bílnum þeirra en það eru bara nýleg dekk og ég var á ónýtum dekkjum...heppin ég :D Jæja kveð í bili

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 14:28:55 / fanney79

áramót og afmæli

Jæja jólin búin og áramótin taka við...ég á nú ekki von á að gera neitt nema fara heim til mömmu og borða á gamlás...annars ætla ég bara heim eftir það og slaka á...kannski maður taka video því ég á nú von á því að Einar og allir sem ég þekki  eiga eftir að taka smá djamm á þetta...þannig að það er fínt að hafa eitthvað að gera ef ég verð ekkert voða sibbin :)
Fór í afmæli til Rósa þann 26 og við gáfum honum gervi kuntu í afmælisgjöf og sögðum við við hann að það ætti að nota hana...en þá bara segir Rósi við mig að hann muni nota hana ef hann fær staðfestingu á því að ég hafi notað Mr. Monster....sem ég mun aldrei gera þar sem það er ekkert smá huge dildó sem Rósi og Kalli gáfu mér í afmælisgjöf :P
Jæja við munum þá bara hvorugt nota afmælisgjöfina frá hvort öðru því ég er ekki alveg á því að nota mína :P
Eruð þið með einhver sniðug plön um áramótin????


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 13:15:52 / fanney79

gjafir fyrir kvk og kk!?!?

Ohhhh ég er bara alveg í stökustu vandræðum með að finna jólagjafir í ár fyrir mitt fólk...hvað á ég t.d að gefa 16 ára bróður mínum sem á gjörsamlega allt?????? Mér finnst alveg einstaklega erfitt að finna gjafir fyrir karlmenn og þarf ég að kaupa nokkrar gjafir fyrir karlmenn...einhvernvegin finnst mér alltaf auðveldara að finna eitthvað fyrir kvennmenn :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 11:34:34 / fanney79

Batnandi fólki er best að lifa ekki satt??

Jæja þá er þessi brjálaða helgi búin loksins og bara vika til jóla...mikið verð ég ánægð þegar þetta ár er búið!!!!!!!
Á laugardag fór ég út að borða með föður famelíu Einars því það var verið að halda upp á afmæli pabba hans og var bara gaman að fá að hitta allt þetta fólk :)
Eftir matinn var haldið á Pravda í afmælisveislu hans Ísleifs og var bara þrusu stuð þar og teknar rosa margar myndir sem ég kannski reyni að setja inn við tækifæri (þar að segja þegar ég er búin að fá myndir frá Kristínu,Rósa og Halldóru :) )
Svo var vaknað í fyrralagi á sunnudag því ég þurfti að gera allt til fyrir afmælisveislu dóttir minnar...og átti eftir að gera alveg slatta þannig að það var smá panik í gangi á tímabili en sem betur fer hafðist þetta :)
En ég er svolítið ósátt við hvað margir sögðust ætla að koma í afmæisveisluna og svo bara létu ekkert sjá sig og létu ekkert vita og núna sit ég uppi með alveg slatta af afgöngum því ég átti von á fl fólki!!!!!....get ekki annað sagt en mér finnst þetta frekar mikill dónaskapur í fólki :/
Ég veit að það er mjög stutt í jólinn og mikið að gera hjá fólki en þegar fólk segist ætla að gera eitthvað þá á það að standa við það...annars átti þetta sama fólk bara að segjast ekki geta komist í fyrsta lagi!!!!!!!!
En jæja við famelían verðum bara að lifa á köku afgöngum til jóla hehe :P

Síðasta prófið búið....en ég tók það í dag....ætti að vera ánægð að vera búin og er það að vissu leiti en mér er búið að ganga svo illa á þessum prófum sem ég er búin að taka að mér finnst ég ekki geta verið eitthvað ánægð :(
Ég ætla mér að standa mig betur á næstu önn og þá geri ég ráð fyrir því að ég muni ekki vera í eins miklu keiosi og ég er búin að vera í þessa önn :/
Mér er búið að ganga bara vel í skóla þar til á þessari önn...og er mjög leiðinlegt að vera koma með svona léleg afköst þegar maður er búin að skila mjög góðum afköstum en ég verð bara að gera betur næst...batnandi mönnum/konum er best að lifa ekki satt??


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 17:41:04 / fanney79

Allt of mikið að gera!!!

Ég er að fara að þýsku próf á morgun svo er ég að fara út að borða með föðurfamelíu Einars á laugardagskvöldinu, og svo beint þaðan í afmæli Ísleifs og svo á sunnudaginn er ég með barnaafmæli...en þarf samt að finna tíma í að læra meira undir íslensku prófið sem ég er að fara í á mánudag......ARG!!!!!!!!!

Þannig að undibúningur undir próf og  afmælisveislur er fram á mánudag í bili...en afmælin eru þá sko ekki búin fyrir þennan mánuð( búin að vera held ég 8 sem eiga afmæli það sem komið er af mánuðinum en alveg helling eftir!!!!)
Hvað er þetta eignilega getur fólk sem ég þekki ekki átt börnin sín í öðrum mánuði en desember og þar að auki ég...en það er ekki mér að kenna heldur barnsföður mínum(ekki get ég kennt sjálfri mér um það hehe :P )...held þetta sé bara samsæri gegn mér þessi afmælisfaraldur í desember thíhí nei nei bara grín....annars er ég búin að kaupa nokkrar afmælisgjafir og nokkrar jólagjafir en samt allt of mikið eftir...mér er eiginlega bara farið að hlakka til að desember er búin!!!

En jæja nóg í bili...ég ætla að fara að gera eitthvað í því að gefa þessum álfum hérna á heimilinu að borða :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 11:21:24 / fanney79

jól jól og meira um jólin :)

Jæja ég er loksins að drullast til að blogga smá :) Í gær tók ég upp á því að jólaskreyta heima hjá mér og allt orðið alveg rosalega fínt og flott :)...setti líka upp jólatréð og öll famelían hjálpaðist til við að skreyta það :) Svo segir bara fólk við mig að ég sé geðveik að vera búin að setja jólatréð upp stax :O En mér gæti ekki verið meira sama...af hverju að byrja á því að skreita og hætta í miðjum klíðum og sleppa því að setja upp jólatréð??? Ég er gjörsamlega lost hvað við kemur að gefa fólki í jólagjafir og afmælisgjafir....en það eru bara allt of mikið að afmælum í desember hjá fólki sem ég þekki :S Ég legg svo til að allir sem eiga afmæli í des ættu að færa afmælisdaginn sinn þar til í janúar-febrúar :P Ég og Birgitta ætlum kannski í Bláa lónið á föstudag eftir vinnu og kannski einhverjir fl...og jafnvel að það verði fengið sér eitthvað gott að borða eftir á :) Annað plan um helgina er ekki komið en kannski maður geri eitthvað sniðugt með Einari á laugardaginn eða eitthvað :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 12:58:52 / fanney79

Ótrúlegt en samt satt :)

Jú ég hef verið að halda því fram að ég ætli ekkert að binda mig strax því ég væri bara enganvegin tilbúin í eitthvað svoleiðis batterí en svo kinntist ég gaur og mér sýnist það á öllu að ég verði bara að taka það til baka sem ég hef verið að segja því ég er alveg tilbúin í samband með honum og hann með mér :)
Skrítið hvað allt getur breyst á bara no time :)

Kristín mín átti afmæli þann 21 og verður haldið upp á afmælið á laugardaginn og að sjálfsögðu ætlar mín að vera edrú...þar sem ég er alveg hætt að drekka :)
Komst loks á AA fund í gær...við Lára vinkona skelltum okkur...ætla nú ekkert að fara mikið nánar í það nema mér fannst þetta bara frekar skrítin upplifun....


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 17:23:11 / fanney79

Það sprakk hjá mér dekkið :O

Ég og Lára ætluðum að skreppa á fund niður í bæ en á leiðinni sprakk hjá okkur á bílnum og við stoppuðum hjá laugardagshöllinni...svo segi ég í gríni eigum við ekki bara að húkka næsta bíl og byðja um aðstoð þar sem ég kann ekki að skipta um dekk(algjör skandall) en áður en við erum búnar að einu sinni reyna að gera eitthvað stoppar þessi flotti nýji jeppi og út stígur maður í jakkafötum og býður fram hjálp sína...við brostum bara breitt og þáðum það með þökkum...en svo á hann eitthvað erfitt með að taka svo dekkið af og þá stoppar annar voða fínn jeppi og annar gaur stígur út í jakkafötum og býður fram hjálp sína....við þáðum það bara líka með þökkum því ekki vorum við að ná dekkinu af og þessi náði þvi af eins og skot...í fyrstu héldum við að þessir 2 gaurar þekktust eitthvað en svo var ekki....voðalega er gott hvað fólk er hjálpsamt :D
Svo kvöddum við gauranna og ætluðum að halda á þennan fund sem við vorum þegar of seinar á...en allt var eitthvað á móti því að við færum á þennan blessaða fund því það var lokuð gata og við þurftum að taka voða krókaleið og svo fundum við bara alls ekki stæði!!!!!
Þannig að við hættum bara við að fara á þennan fund og við gerum það bara síðar :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8